Flýtilyklar
Hráskinku Carpaccio
fyrir 4-6
- 200 gr Napoli skinka
- 2 msk Góð ólífuolía
- 50 gr Parmesan ostur
- 12-15 blöð basilika
- nýmalaður svartur pipar úr kvörn
Penslið 4-6 diska með ólífu olíunni, dreifið Napoli skinkunni á diskana þannig að hún þekji botninn. Skerið Parmesan ostinn í þunnar sneiðar og dreifið yfir ásamt pipar og basiliku.