Godi.is, naut, lamb, grís, grillkjöt, uppskriftir, naggar, álegg

Vefurinn Goði.is þar sem helstu upplýsingar um Goða vörur er að finna sem dæmi má nefna nautakjöt, lambakjöt, grísakjöt, svínakjöt, grillkjöt, álegg, pylsur og naggar. Uppskriftir er hægt að finna á vef Goða

Flýtilyklar

Goða Villikryddað Lambalæri


  • 1 Goða Gourmet Villikryddað Lambalæri
  • 250 ml vatn
  • 250 ml rjómi 
  • Kjötkraftur eftir smekk 
  • Sósujafnari

Hitið ofninn í 175°C  Setjið lærið í steikarfat og steikið í um 45 mínúturm snúið lærinu tvisvar eða þrisvar á steikingartímanum.  Takið lærið úr ofninum og breiðið tvöfalt lag af álpappír yfir fatið og látið lærið standa á hlýjum stað í um 1 klst.  Hitið ofninn í 200°C, fjarlægið álpappírinn og setjið lærið aftur í ofninn og steikið í 20-25 mínútur.  Takið lærið út, setjið á fat og látið standa í 10-15 mínútur.  Á meðan er vatni hellt í steikarfatið og botninn skafinn vel til að ná kraftinum.  Síið soðið í pott, bætið rjóma og kjötkraft út í og hitið að suðu.  Látið malla í nokkrar mínútur.  Þykkið með sósujafnara og bragðbætið með pipar og salti.  Berið kjötið fram með sósunni, ásamt t.d. brúnuðum kartöflum, rauðkáli, baunum og maís.

Uppskrift úr uppskriftarbókinni Jólahefðir Nóatúns

...

Innskráning

moya - Útgáfa 1.10 RC1 2006 - Stefna ehf