Godi.is, naut, lamb, grís, grillkjöt, uppskriftir, naggar, álegg

Vefurinn Goði.is þar sem helstu upplýsingar um Goða vörur er að finna sem dæmi má nefna nautakjöt, lambakjöt, grísakjöt, svínakjöt, grillkjöt, álegg, pylsur og naggar. Uppskriftir er hægt að finna á vef Goða

Flýtilyklar

Pizzu partý

Pizzubotn

  • 1/2 pakki ger
  • 3 dl volgt vatn
  • 8 dl hveiti
  • 1/2 tsk salt
  • 2 tsk olía

Hrærið gerið út í vatnið og setjið svo saltið og olíuna saman við og að lokum er hveitið sett saman við og deigið hnoðað þangað til það er slétt og sprungulaust. Látið deigið lyfta sér þar til það hefur a.m.k tvöfaldað rúmmál sitt.

Pizzusósa

  • 1 dós maukaðir tómatar
  • 3 hvítlauksrif
  • 1/2 tsk Oregano
  • 1/2 tsk basilika
  • Pipar úr kvörn
  • Salt

Pressið hvítlaukinn saman við tómatmaukið og hrærið saman ásamt oregano og basiliku piprið og saltið eftir smekk.

Grunnur: Fletjið nú deigið út í passlegar stærðir dreifið hæfilegu magni af pizzusósunni jafnt yfir deigið þá osti og að lokum er uppáhalds álegg hver og eins sett ofan á og pizzan bökuð í 225°C heitum ofni í ca 20-25 mínútur.

Athyglisverðar samsetningar:

1. Napoliskinka og mozzarella. Prófið að setja ferskt basil ofan á áður en pizzan er borinn fram.

2. Ítalskt salami, ananas og hvítlaukur

3. Sterkt pepperoni bananar og gráðostur

4. Egg og bacon

5. Pepperoni, sólþurrkaðir tómatar og grænt pestó!!!

6. Kjúklinga álegg, Tortillaflögur og salsasósa.

...

Innskráning

moya - Útgáfa 1.10 RC1 2006 - Stefna ehf