Flýtilyklar
Hunangsgrísakótilettur
Hunangsgrísakótelettur með frísklegu ananassalati
fyrir 4
4 léttreyktar hunangsgrísakótelettur, Goða gourmet Grís, salt og pipar.Kryddið kóteletturnar með salti og pipar. Grillið á meðalheitu grilli í 8-10 mínútur eða eftir þykkt. Berið fram með ananassalati og kryddsósu.
Ananassalat:
2 ferskir ananasávextir
2 vorlaukar
3 msk. mynta, fersk
safi úr límónu
1 tsk. púðursykur
Skerið ananasinn í fjóra hluta, kjarnhreinsið hann og skrælið og skerið í litla bita. Saxið vorlaukana smátt og blandið saman við ananasinn ásamt myntu, límónusafa og púðursykri. Látið salatið standa í kæli í klukkustund áður en það er borið fram.
Kryddsósa:
1 dós sýrður rjómi (10%)
2 msk. majónes
2 msk. graslaukur, saxaður
2 msk. steinselja, söxuð
2 msk. dill saxað
7-8 dropar tabasco-sósa
1/2 tsk. worchestershire-sósa
Blandið öllu saman í skál og kælið sósuna í klukkustund áður en hún er borin fram.