Flýtilyklar
Húsavíkur Hangikjöt
- 1 stk Húsavíkur hangilæri, úrbeinað eða læri á beini
- 1 msk sykur ( má sleppa)
Kjötið er sett í hæfilega stóran pott. Ef sjóða á heilt læri má nota stóran steikarpott með loki og setja hann á tvær eldavélahellur.
Köldu vatni er hellt yfir og sykri bætt í pottinn. Lok sett á pottinn og hitað mjög rólega að suðu, það gæti tekið allt að 45 mínútur.
Þegar sýður er hitinn lækkaður og kjötið látið malla í 10-15 mínútur við hægan hita. Þá er slökkt undir pottinum en hann ekki
tekinn af hellunni. Kjötið er látið kólna næstum alveg í soðinu en síðan tekið uppúr og geymt í kæli. Best er að taka það út
nokkru áður en það er borið fram svo það sé ekki alveg ískalt. Berið fram með t.d. kartöfluuppstúfi, grænum baunum og laufabrauði.
Uppskrift úr uppskriftarbókinni Jólahefðir Nóatúns