Hangikjöt

KEA Hangikjöt KEA hangikjötið hefur í mörg ár verið valið eitt það besta af helstu matgæðingum þjóðarinnar, enda hefur það lengi verið söluhæsta

Hangikjöt

KEA Hangikjöt

KEA hangikjötið hefur í mörg ár verið valið eitt það besta af helstu matgæðingum þjóðarinnar, enda hefur það lengi verið söluhæsta hangikjötið.  Það er taðreykt og verkað með hefðbundinni, íslenskri aðferð sem tryggir bragðgott kjöt með góðu reykbragði og miklu geymsluþoli.  Engum öðrum efnum bætt við taðið og engu vatni er bætt við hangikjötið þannig að suðurýrnun er í lágmarki. Um 2 vikur tekur að framleiða KEA hangikjöt og er framleiðslunni  stjórnað af margverðlaunuðum fagmönnum. Strangt gæðaeftirlit er með framleiðslunni sem tryggir neytendum ávallt fyrsta flokks hangikjöt.

Sjóðið rólega í u.þ.b. 60 mín. Takið pottinn af hellunni og látið kjötið standa í soðinu í 60 mín. Berið fram eða kælið í ísskáp. Fyrir kælingu er gott að setja hangikjötið í plastpoka til að hindra lykt og þornun.


Húsavíkur Hangikjöt

  • 1 stk Húsavíkur hangilæri, úrbeinað eða læri á beini
  • 1 msk sykur ( má sleppa)

Kjötið er sett í hæfilega stóran pott. Ef sjóða á heilt læri má nota stóran steikarpott með loki og setja hann á tvær eldavélahellur.
Köldu vatni er hellt yfir og sykri bætt í pottinn.  Lok sett á pottinn og hitað mjög rólega að suðu, það gæti tekið allt að 45 mínútur.
Þegar sýður er hitinn lækkaður og kjötið látið malla í 10-15 mínútur við hægan hita.  Þá er slökkt undir pottinum en hann ekki tekinn af hellunni.  Kjötið er látið kólna næstum alveg í soðinu en síðan tekið uppúr og geymt í kæli.  Best er að taka það út nokkru áður en það er borið fram svo það sé ekki alveg ískalt.  Berið fram með t.d. kartöfluuppstúfi, grænum baunum og laufabrauði.

Uppskrift úr uppskriftarbókinni Jólahefðir Nóatúns


Sambands Hangikjöt

Sambandshangikjötið er sprautusaltað hangikjöt og svar Norðlenska við kalli neytenda eftir ódýrara hangikjöti.  Framleiðsluaðferð sprautusaltaðs hangikjöts er einfaldari en á hefðbundnu hangikjöti og er viðbætt vatn látið bæta upp verðmunin.  Sambandshangikjötið hefur undanfarin ár verið afar vinsælt meðal íslendinga.

Sjóðið rólega í u.þ.b. 60 mín. Takið pottinn af hellunni og látið kjötið standa í soðinu í 60 mín. Berið fram eða kælið í ísskáp. Fyrir kælingu er gott að setja hangikjötið í  plastpoka til að hindra lykt og þornun.

Athugið að suðurýrnun á sprautusöltuðu hangikjöti er í flestum tilvikum meiri en þegar hefðbundið hangikjöt er eldað.

Svæði

Goði er í eigu Norðlenska ehf      Grímseyjargötu      600 Akureyri      Sími 460 8800      Fax 460 8801      Kt. 500599-2789