Þunnar lambasneiðar

fyrir 4, að hætti Friðriks V1 stk lamba innanlærisvöðvi1/2 dl góð ólífuolía3-4 kvistir ferskt blóðberg (timjan)2-3 kvistir fersk bergmynta (

Þunnar Lambasneiðar með Salati og parmesan


fyrir 4, að hætti Friðriks V

  • 1 stk lamba innanlærisvöðvi
  • 1/2 dl góð ólífuolía
  • 3-4 kvistir ferskt blóðberg (timjan)
  • 2-3 kvistir fersk bergmynta ( oregano)
  • örlítið mulið sjávarsalt
  • nýmalaður svartur pipar
  • 4 bollar blandað salat
  • 1 stk lime
  • 60 g parmesanostur

Nuddið kryddjurtum, pipar og olíu á vöðvann. Setjið í djúpan bakka og saltið örlítið.  Geymið í kæli yfir nótt áður en vöðvinn er snöggsteiktur þannig að hvergi sjáist í hrátt en eldaða röndin á samt ekki að vera breiðari en 2 mm þegar kjötið er sneitt.  Setjið vöðvann í frysti í 2-3 klst. svo auðveldara sé að skera hann þunnt en gætið þess að hann frjósi ekki í gegn.  Skerið þunnar sneiðar þvert á vöðvann og raðið þeim á disk.  Hellið mjórri rönd af ólífuolíunni yfir. Skolið salatið vel í köldu vatni og þerrið. Kreistið limesafa yfir, kryddið með ólífuolíu, salti og sykri og leggið salatið ofan á kjötsneiðarnar.  Að lokum er parmesanosturinn rifinn yfir og rétturinn borinn fram.

 

 

Svæði

Goði er í eigu Norðlenska ehf      Grímseyjargötu      600 Akureyri      Sími 460 8800      Fax 460 8801      Kt. 500599-2789