Surf & Turf
fyrir 4 ( Þýtt, Til sjávar og sveita þar er verið að vísa til þess að hráefnið kemur úr hafi og af landi)
- 4 stk Gourmet nautafíle steik
- 1/2 tsk maldon salt
- 1/2 pipar úr kvörn
- Smjör
- 8-12 Risarækjur eða humar
Kryddlögur
- 2 msk Ólífuolía
- 1 tsk Sítrónusafi
- 1 tsk smátt saxað chilli
- 1 Hvítlauksrif
- 1/4 tsk Tandori krydd
- 1/4 tsk Salt
Sósa
- Nautasoð
- Sósujafnari
- Epli
- 1/2 tsk Timian
Flysjið eplin og skerið niður í litla teninga setjið þá saman við nautasoðið og bragðbætið með timian, salti og pipar. Þykkið að endingu soðið með sósujafnaranum.
Aðferð
Blandið saman kryddlöginn og látið rækjurnar liggja í honum í um 20 mínútur. Steikið kjötið á vel heitri pönnu í 2 mínútur á hvorri hlið. Setjið það síðan inn í 180°C heitan ofn í 4-5 mínútur (medium rare). Setjið nú kryddlöginn ásamt rækjunum, og hitið á lágum hita að suðu. Takið kjötið úr ofninum og látið það jafna sig í 4-5 mínútur áður en það er borið fram. Þræðið rækjurnar upp á trépinna 2-3 stykki á hvern pinna, stingið þeim í steikurnar og hellið kryddleginum jafnt yfir. Berið fram með steiktu grænmeti, sósunni og bakaðri kartföflu.