- 500-750 g lambakjöt
- 2 1/2 l vatn
- 1 msk. salt
- 75 g hrísgrjón
- 1/2 kg gulrófur
- 250 g kartöflur
- 250 g hvítkál
- 1 msk súpujurtir
Látið kjötið út í sjóðandi vatn. Veiðið froðuna af þegar suðan kemur upp aftur. Sjóðið í 15 mín.
Þvoið hrísgrjónin í köldu vatni og setjið útí. Sjóðið aftur í 15 mín.
Flysjið rófurnar og kartöflurnar og brytjið kálið. Látið út í og sjóðið við frekar vægan hita í 30-45 mín með hlemm yfir pottinum.
Kjötsúpan er krydduð eftir smekk með salti og súpujurtum