Líklega besti skyndibitinn
2 grófar brauðsneiðar
2 Skinkusneiðar
2 Ostsneiðar
Örlítið sætt sinnep
Paprikusneiðar
Kál
Smyrjið sætu sinnepi á báðar brauðsneiðarnar. Raðið einni sneið af skinku og osti á brauðsneið.
Leggið paprikusneiðar og kál yfir og klárið ostinn og skinkuna. Lokið með seinni brauðsneiðinni.
Verði þér að góðu